Tuesday, September 18, 2007


Flott í Silfru eða hvað. Þið sem ekki kafið, prófið að snorkla í Silfru, þetta er ótrúleg upplifun, svo tært vatn, það gerist varla betra.


Er ég spennufíkill? Mér finnst á honum pabba mínum að svo sé. Mér finnst gaman að vinna á sjúkrabílnum, mér finnst æði að fljúga í þyrlu. Ég elska vinnuna mína, engir 2 dagar eru eins. Ég elska að ferðast og kynnast nýju fólki. Köfun er bara gaman. Ég hef nú samt engan áhuga á því að hoppa úr fallhlíf, líklegast vegna þess að ég er svo lofthrædd. Ég veit það ekki kannski er ég spennufíkill hvað haldið þið?

kram
Anna Dóra

4 comments:

  1. Anonymous11:08 AM

    Spennufíkill

    Kveðja
    Maggi

    ReplyDelete
  2. Skora á þig að hoppa úr flugvél með fallhlíf á bakinu, en mér líst verr á ef þú ætlar að hoppa úr fallhlíf. Þú verður að fullkomna spennufíkilinn í sjálfri þér með því að fara í háloftin.

    kv. Ásdís

    ReplyDelete
  3. Anonymous5:15 PM

    Hahaha hoppa úr fallhlíf, ég átti náttúrulega við fallhlífarstökk en NEI ég efast um að ég eigi nokkurn tíma eftir að prófa það.

    ReplyDelete
  4. Anonymous10:00 PM

    Hugtakið "spennufíkill" þarf ekki að verka niðrandi, þvert á móti er það merki um einstakling sem þorir því sem margir þora ekki, augnablik sem svo margir hefðu viljað upplifa en létu líða hjá. Þú ert "smart" í Silfru, takk fyrir síðast og sjáumst innan skamms á "oktoberfest" í Þýskalandi innan skamms.

    Gamli

    ReplyDelete