Ég hlakka svo til á morgun. Við vinkonurnar ætlum að eyða deginum saman. Jessica er að flytja til Växjö núna í lok mánaðarins þannig að við ákváðum að fyrst við erum allar í fríi að fara í spa. Við ætlum að byrja daginn í Ronnebybrunn, skella okkur í gufu, pottinn, jafnvel að fara í tækin og borða hádegismat þar. Síðan erum við búnar að panta borð á veitingastað og ætlum svo að enda á að fara í bíó, ætlum að sjá Jane Austin book club. Enda daginn með stelpumynd. Hljómar vel ekki satt.
Sá annars Saw IV í kvöld, er reyndar bara búin að sjá fyrstu myndina þarf að drífa mig í að sjá nr II og III.
Best að drífa sig í háttinn
2 comments:
Þá er bara um að gera og skemmta sér, bara ekki eins og í Saw eða hvað?
Hvernig gegnur annars að skipuleggja "STÓRA EPLIÐ"?
Kveðja
Maggi
þetta hefur verið lúxus dagur hjá ykkur !
kv.
Guðrún
Post a Comment