Wednesday, September 09, 2009

JEIIIIIIIIII
Við tókum last minute ákvörðun og ákáðum að skella okkur til Galapagos =) það er dýrt að fara þangað, sama hvenær maður gerir það!!
Ég hringdi í fyrirtækið í morgun og þeir ætla að bóka ferðina fyrir okkur, eins gott að þeim takist það því við erum búnar að borga. Og ég get ekki hætt að brosa.
Þetta þýðir að við förum 14. nóv og komum síðan heim 20. jan. Ferðin lengist um tæpa viku. 9 vikur á ferðalagi ahhhh hvað ég hlakka til.
Við verðum líklegast með ferðadagbók á netinu til þess að leyfa öllum að fylgast með ferðalaginu, eitthvað svipað og þegar við vorum í Ástralíu=)
Eins gott að þið hittið mig ekki í augnablikinu, ég get ekki þurrkað glottið af andlitinu á mér, enda engin ástæða til þess, ég er svo hamingjusöm.
kram

1 comment:

Anonymous said...

Geðveikt, hlakka til að fylgjast með ykkur á blogginu, engin öfund í gangi...eða þannig.

Tek bara þátt í hamingjunni með ykkur

kv
Rúna