Road trip
Er að leggja af stað í Road trip með Jessicu, til Gautaborgar, JT á morgun. Ætlum reyndar að byrja daginn með því að fara í Liseberg(við eigum eftir að standa við hliðið þegar þeir opna) og vitiði hvað, Jessica er álíka biluð og ég (það hlýtur að vera ástæðan fyrir því hversu vel við náum saman) vitiði hvað við eigum eftir að fara í mörg tæki=) Einn besti rússibani sem ég hef prófað er í Liseberg, fór x2 í hann þegar ég var þar í fyrra. Síðan eru tónleikarnir um kvöldið. Keyrum síðan heim á þriðjudaginn.
Set inn eftir helgi myndir frá þyrluæfingunni
Anna Dóra
2 comments:
Góða ferð og góða skemmtun. Vona að þið verðið í standi til að fara á tónleikana eftir hristinga og snúninga dagsins.
kv
Ég les út úr textanum að þið ætlið í EITT tæki, einhvern rosalegan rússíbana, veit nú ekki hvort að ég mundi tíma að borga mig inn til þess að fara í EITT tæki.
Annars góða ferð og góða skemmtun í þessu EINA tæki, vona að ferðin í rússíbananum verði hverrar krónu virði.
Kveðja
Maggi
Post a Comment