Sit á 3ju 16 tíma vaktinni og er að láta tímann líða. Fyrsta vaktin þar sem ég er ekki á hlaupum í tíma og ótíma. Ætlaði bara að nota tækifærið og þakka öllum sem komu í partýið til mín fyrir mig. Það var ekkert smá gaman að hitta alla. Hver kom mest á óvart í partýinu, jú mikið rétt það var Maggi, ég hefði aldrei trúað að drengurinn myndi taka lagið í Singstar, efast reyndar um að það hafi verið margir sem áttu von á því=)
Á eftir tvær 16 tíma vaktir fimmtudag og föstudag, áður en ég held heim á leið á laugardagsmorguninn. Ég er orðin spennt að vita hvað ég fái í laun því ég hef heyrt orðróm um að ég sé búin að gera mikið og gott gagn=)
Verð að halda áfram að vinna, bless í bili
Anna Dóra
2 comments:
Verður maður ekki að vera með eða hvað?
Sammála því þetta var alveg rosalega gaman og Maggi kom sterkur inn sem óvænt skemmtiatriði ekki satt!!!!
Úlla og Solla eru allavega enn að tala um hvað hann var skemmtilegur
Post a Comment