Sunday, January 06, 2008

Fyrsta blogg ársins.
Mikið var ég glöð þegar ég vaknaði í morgun. Það byrjaði að snjóa í gærkvöldi og í morgun lá ca 5 cm nýfallinn snjór yfir öllu. Skrýtið eins og ég þoli ekki kulda/vera kalt þá elska ég snjó. Það hlýtur að vera vegna þess hversu mikið hann lýsir upp skammdegið. Ekki grátt/svart og myglulegt úti heldur hvítt og bjart=)
Annars er svosem ekkert að frétta, var heima á Íslandi um áramótin, hitti bæði vini og ættingja og hafði það almennt mjög gott. Kom svo hingað heim aðfaranótt laugardags og er búin að vera að vinna um helgina þar sem var aldrei þessu vant mjög rólegt.

Bið að heilsa í bili
kveðja
Anna Dóra

1 comment:

Anonymous said...

Nú minnir svo ótal margt á jólinn, hvert sem litið er.......
Aðeins 352 dagar til jóla

Kveðja
Maggi