Til hamingju með daginn mamma.
Í kvöld er ég að fara út á Aspö, eyju hér fyrir utan. Við ætlum að taka ferjuna kl 17 . Cissi og Ulrika eiga sumarhús þar og við æltum að hittast nokkur úr vinnunni. Grilla, drekka, fara í gufu og hver veit, kannski fáum við að hoppa í sundlaugina þeirra. Annars höfum við alltaf sjóinn;-)
Ætla að hjóla niður í bæ, mig vantar létta strigaskó og svo eru ballerínuskórnir mínir orðnir frekar slitnir, myndi slá 2 flugur í einu höggi ef ég fyndi 2 pör af skóm í dag.
Hafið það gott í hitabylgjunni sem er spáð heima, ég hef það yndislegt í hitanum hérna.
puss o kram
2 comments:
Frétti að þú hefðir bjargað efnahag skóbúðarinnar og fengið þér tvö pör :o)
Hlakka til að sjá svipinn á strákunum þegar þeir fá gleðifréttirnar að þeir séu að koma í heimsókn.
kv
Rúna
Var svo heppin að það var útsala, þannig að ég fékk bæði ballerínuskó og strigaskó=)
Anna Dóra
Post a Comment