Saturday, June 07, 2008

Vá hvað tíminn líður hratt þegar maður skemmtir sér=)
Í dag eru Caroline og Jessica að koma til mín, við ætlum að grilla og slúðra og seinna í kvöld mun the dynamic duo (Doris og Jess) vonandi fleiri taka schlager með trompi, nema hvað, orðið alltof langt síðan síðast. Var á afterwork á fimmtudaginn, við sátum úti til kl 1 spjölluðum, þjóruðum bjór og bara almennt höfðum mjög gaman. Næsta vika fullskipulögð, vinna mánudag-fimmtudags. Vaka pæja verður stúdent á fimmtudag, vinnupartý á föstudag og svo ætla ég að hjálpa vinafólki mínu að flytja laugardag og sunnudag.
Bara mánuður í að ég komi heim í smá frí, hlakka ekkert smá til að fá smá frí og vitiði hvað er það besta, ég ætla ekki að vinna neitt, bara að njóta þess að vera til og hitta vini og ættingja sem vilja hitta mig.

Best að skella sér útí sólina aftur

2 comments:

Anonymous said...

Hæ elskan, bara svona kvitta fyrir innlitið! Kíki hér sjaldan en þó reglulega!
Stórt knús frá Jóu og the BIG BIG family........

Anonymous said...

Bara velkomin heim, hvað er annars að frétta af stóra eplinu?

Kveðja
Maggi