Sunday, January 25, 2009


Í dag líður mér betur en ég á skilið. Búið að djamma alla helgina og ég er sprækur sem lækur í dag, skellti mér meira að segja í ræktina áðan. Jessica var í heimsókn um helgina og hún færði mér voodoo dúkku jepp þið lásuð rétt. Ég fékk Stella Posh sem elskar að skemmta sér og drekka góða drykki, hún gefur þér kraft til að vera glæsileg alla nóttina án þess að verða þunn daginn eftir ;-) einhver sem sér samhengið!!
kram

5 comments:

Anonymous said...

Það var gott að þú hafir skemmt þér um helgina en ég hef ekki áður heyrt af þessari útgáfu af "voodoo". Til vonar og vara, bið að heilsa "Stellu".

Gamli

Anonymous said...

Og virkaði þetta?

Kveðja
Maggi

Anna Dora said...

Ég drakk góða drykki, var glæsileg, skemmti mér stórkostlega og var ekki þunn. Leið mun betur en ég átti skilið;-)

Anonymous said...

Hvernig væri að senda systur sinni sem þarf tvo sólarhringa til að jafna sig eftir djamm eitt stykki Stellu?

Gaman að þið skemmtuð ykkur vel

kv
Rúna

Jessica said...

Go Stella!! Funkar ju hur bra som helst! :)