Friday, January 16, 2009

Úff, í morgun var smá upprifjunarnámskeið í súrefniskútnum sem var bara gott og blessað, alltaf fínt að fá smá upprifjun. Síðan var smá brunaæfing í kútnum og ég get sagt ykkur að það var kallt. Við köfuðum niður á 5 metra og þá voru slökkviúðararnir inni í kútnum settir í gang og við fengum smá sturtu í leiðinni brrrr. Til að gera allt saman raunverulegt þá tóku þeir rafmagnið af í leiðinni þannig að allt varð svart. Ef maður lítur á björtu hliðarnar þá er allavega hreint í kútnum núna og við vitum að slökkvikerfið virkar on the downside þá er mér ennþá kallt.
Er í fríi það sem eftir lifir dags, síðan taka við 3 næturvaktir=) Ég elska að vera komin á 3skiptar vaktir segi eins og í McDonalds auglýsingunni barababbabbaaaa I'm loving it......
kram

1 comment:

Anonymous said...

Gott að þú ert svona jákvæð, af hverju þurftir þú að setja inn McDonalds, nú langar mig í :o(

kv
Rúna