Saturday, July 07, 2007
Halló hvað segir fólk í dag, fékk þessa mynd í tölvupósti um daginn, mér finnst þetta ekkert smá fyndið. Hvað finnst ykkur?
Annars ekkert mikið um að ske hérna, djamm alla helgina. Fór með Jessicu á Nivå í gær og svo er planið að kíkja á schalgerbaren í kvöld og dansa. Síðan ætlar stelpurófan að yfirgefa mig í heilan mánuð, hún er að fara til Noregs að vinna.
Fékk í gær pakka að heiman, geisladiska með myndum úr ferðalaginu, þokkalega sem ég er að fara að framkalla myndir og setja þær svo í albúm, ætli maður geti samið um verðið þegar maður framkallar milljón myndir........
Bið að heilsa í bili, er að fara út að fika, jú jú maður er orðinn eins og infæddur, finnst mikilvægt að fika (fika=fara á kaffihús eða bara kaffipása í vinnunni)
puss
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Af þessu að dæma er mælirnn bilaður núna.
Kveðja
Maggi
Sæl mín kæra.
Myndin af þér og Hrafnhildi hangir nú inni á kaffistofu GG Hringbraut. Þar undir stendur Hrafnhildur okkar .... en auðvitað bætti ég við ... og Anna Dóra mín.
Þú ert algjörlega að fríka út kona góð, svona á að lifa lífinu! Hvað ætli þér detti næst í hug.
Bestu kveðjur frá Ásdísi.
Takk fyrir þetta Ásdís mín. Næsta verkefni sem ég er að fara að setja í gang er að læra að kafa. Svo skilst mér að það eigi að senda allar svæfingahjúkkurnar hérna á námskeið í að bjarga sér út úr þyrlu sem hefur nauðlent á vatni. Ef þið skiljið ekki hvað ég á við kíkið þá á www.youtube.com og leitið eftir huet, þetta á ég mjög líklega eftir að gera.
puss og kram
Anna Dóra
Post a Comment