Friday, August 03, 2007

Þarf að deila út fullt af afmælisprikum fyrir þessa vikuna.
31. júlí Gunni frændi
1. ágúst Guðrún
3. ágúst Pabbi, Óskar bróðir og Maggi frændi
Til hamingju öll saman, vona að þið njótið/nutuð dagsins.

Annars er allt við það sama hér, vinna, borða, sofa, er reyndar búin að sparka í rassinn á sjálfri mér og byrjuð að æfa aftur. Maður hlýtur að vera bilaður þegar maður er ánægður af því að maður er svo þreyttur að maður vill gubba!!! Þannig leið mér allavega í gær á æfingunni. Fór í tvöfaldan tíma, spinning og pump og já það tók á get ég lofað ykkur.

Ætla að skella mér út í rigninguna, þarf að skipuleggja pínu í Íslandsferðinni, það bættist einn við.

Hafið það gott
Anna Dóra

2 comments:

Jessica said...

EN NATT KVAR!!!

Anonymous said...

Takk fyrir afmælisprikið, hér var að sjálfsögðu gott að borða enda tvö afmælisbörn til staðar. Það rættist úr veðurspám um "verslunarmannahelgina" því leyfar stormsveips frá USA fór sunnan við landið og sogaði til sín áður spáða rigningarlægð. Sjáumst í komandi viku.
Gamli