Sunday, November 28, 2004

Eini gallinn við það að hafa ekki þvottavél í íbúðinni hjá sér eru hinir sem virðast líka þurfa að þvo. Átti þvottahúsið um síðustu helgi en var barasta alltof slöpp til að nenna að druslast niður með allan þvottinn minn. Svo þegar ég ætlaði að panta nýjan tíma var ekkert laust nema í morgun þannig að ég er búin að standa á haus frá því klukkan 8 í morgun og þvo 2ja vikna uppsafnaðan þvott og ég get sagt ykkur það að skáparnir mínir eru því sem næst tómir. Annars er allt gott að frétta, djamm síðasta föstudag og annað næsta föstudag. Ætla reyndar næsta föstudag með Guðrúnu og Eiríki upp til Växjö og við ætlum í dótabúðaleiðangur í Toys'r'us ég hlakka svo til að það er ekki venjulegt.
Bið að heilsa í bili, þvotturinn kallar
Anna Dóra

Tuesday, November 23, 2004

Ímyndið ykkur þetta og hugsið hvað er að?

Hversu langt eigum við eiginlega eftir að ganga með þessu svokallaða raunveruleikasjónvarpi? Piparsveinninn, piparjúnkan, ást eða peningar, survivor, robinson, farmen, hver vill giftast pabba mínum og ég veit ekki hvað. Núna það nýjasta gay or straight. Ung og hugguleg (nema hvað) dama ein með 14 karlmönnum, helmingur þeirra er samkynhneigður, allir eru þeir að keppa um ástir hennar, ef hún velur homma fær hann miljón dollara ef hún velur "rétt" fær hún peninginn HJÁLP hvað er að!!! Mér finnst reyndar ágætis framtak hjá einni sjónvarpsstöðinni hérna sem er að gera grín að þessum þáttum í formi jóladagatals. Í fyrra var það jólasveinninn á loftinu, 24 einstaklingar sem lifðu á möndlugraut og sælgæti og einn kosinn út á hverjum degi. Núna hver verður frú Sveinki 24 stúlkukindur að keppa um ástir Sveinka og byrjar 1.des ég er svo þreytt á þessu raunveruleika sjónvarpi að ég hugsa að ég bara kveðji að sinni.
Anna Dóra ekki næsta frú Sveinki
:-)

Saturday, November 20, 2004

Þetta kalla ég þjónustu í lagi.

Var semsagt að panta mér linsur í vikunni og hérna fær maður alltaf augnskoðun með hverri linsupakkningu bara til að þeir séu vissir um að maður sé ekki að fá linsur sem eru annaðhvort of daufar eða sterkar.

Annars er ég frekar slappur núna, með verki um allan líkamann, reyndar hitalaus en mér virðist ekki ætla að hlýna þannig að öllum djammplönum kvöldsins verður frestað þar til um næstu helgi þar sem ég hef ekki tíma til að verða veik.

Ég og Guðrún erum búnar að vera hrikalega duglegar að læra og komnar ágætlega af stað með síðasta verkefnið okkar, gengur hrikalega vel í vinnunni og höldum barasta að við séum bestar þó svo við segjum sjálfar frá.

Jæja ætla að hugsa vel um mig í kvöld, á víst að mæta í vinnuna annaðkvöld.

Kveðja Lasarusinn í Karlskrona


Wednesday, November 17, 2004

Þvílíkur dagur sem ég hef átt í dag. Í morgun í vinnunni var kvartað um að það væri of mikil ilmvatnslykt af mér og ég var send niður í sturtu........ það er nú oftast á hinn veginn að fólk kvarti frekar undan svitalykt heldur en góðri lykt c",). Fór svo á fyrirlestur og þegar ég kom tilbaka kallaði deildarstjórinn í mig, great hugsaði ég fæ ég fyrirlestur um ilmvatnsnotkun núna en nei hvað haldiði hún bauð mér VINNU þið eruð semsagt að lesa dagbókarfærlsu eftir nýjasta starfsmann svæfingadeildarinnar hér í Karlskrona JIBBÝ JIBBÝ endalaus gleði, ég er semsagt búin að fá afleysingastöðu á svæfingunni fram til ágústloka 2005 og þá er bara að sjá hvað gerist.
Bið að heilsa frá gleðigeiminu á Snapphaneväg
Anna Dóra sem er í þvílíka dúndurgleðiskapinu :-)

Friday, November 12, 2004

Laufabrauð

Hittumst í dag Íslendingarnir og gerðum saman laufabrauð og hlustuðum á jólatónlist, ekkert smá skemmtilegt- hávaðasamt en gaman.
Hitti líka starfsmannastjórann og deildarstjórann á bráðamóttökunni og fæ svo að vita meira í næstu viku hvernig þetta verður allt saman og Maggi, ég byrja ekki að vinna fyrr en eftir að þú verður farinn heim þannig að þú þarft ekkert að væflast um einn meðan ég er að vinna.
Setti inn smá myndir frá laufabrauðsgerðinni.
Verðum í bandi
Kveðja
Anna Dóra

Tuesday, November 09, 2004

Tatatatdammmmmmmmmm...............

Jæja þá er komið að því, ég hitti semsagt starfsmannastjórann hann Mats í dag og eins og staðan er í dag get ég því miður ekki fengið vinnu á svæfingunni fyrr en í haust en hann bauð mér stöðu á bráðamóttökunni hérna þangað til, sagði að þar væri ég vel geymd en ekki gleymd því þau hefðu mikinn áhuga á að fá mig síðan til starfa þau geta bara ekki ráðið mig í janúar. Ég var því bara mjög sátt, bráðamóttakan er mun betra en ekki neitt og svo verð ég dugleg að minna hann á mig. En svo er líka eins og hann sagði að ástandið getur breyst eins og hendi sé veifað og aldrei að vita nema hann þurfi fyrr á mér að halda inn á svæfinguna, ég bara vona hið besta. Á semsagt að hitta hann og deildarstjórann á bráðamóttökunni á föstudaginn kl 10, ætli það sé ekki til þess að semja um laun og annað.
Jæja ætla að fara og kíkja á Fab Five gaurana
Anna Dóra

Monday, November 08, 2004

Sat í dag að spjalla við Rúnu í símann þegar gemsinn minn byrjar að hringja, ég sé að það er hringt úr leyninúmeri þannig að ég segi við Rúnu, æj þetta er vinnan leyfum þeim að tala inn á talhólfið. Hringdi svo í talhólfið, þá var þetta ekki vinnan, heldur starfsmannastjóri eða hvað ég á að kalla hann af svæfingunni og hann ætlar að hitta mig á morgun um eittleytið og við ætlum að ræða um framtíð mína innan sjúkrahússins!!!!!! Vona að það sé jákvætt en I'll keep you posted.
Þannig að ég ætla að biðja ykkur að hugsa fallega til mín í hádeginu á morgun og það væri ekki verra að þið mynduð krossleggja fingurna c",)
Bjartsýniskveðja
Anna Dóra

Tuesday, November 02, 2004

Veit ekki hvort ég var búin að segja ykkur frá því en ég þekki hinn sænska Martein Mosdal. Aðalkennarinn í skólanum hann Sten aka Marteinn er svolítið einráður og það er hans leið eða engin leið sem er málið. Svo ég fái útrás á ykkur hinum líka þá stóð í stundaskránni að á planinu væri frí í viku 52 og svo setur hann prófin í byrjun viku 52 (20. og 21. des) ég benti nú kurteislega á að skv stundaskrá væri nú frí en fékk þá bara tilbaka að það væri bara á planinu það væri ekkert ákveðið og svo hlustaði hann ekki einu sinni þegar ég sagði að ég hefði pantað flugmiða heim um jólin eftir að ég hefði talað við hann og sem betur fer væri það 22. des þá bara hlær fíflið og segir mér að fara heim og leika við jólasveina og baða í heitu hverunum :-S þá gekk ég í burtu því annars hefði ég bæði sagt og gert eitthvað sem ég hefði séð eftir síðar. Það sem var verst við þessa prófdaga var að Maggi ætlaði að koma til mín þann 17. des, við ætluðum að jólaskapast hér í Karlskrona og Köben og fljúga svo saman heim, þannig að Maggi ákvað að breyta sínum miða og kemur til mín í janúar, líklegast þegar ég útskrifast og verður stuðningsfulltrúi frá fjölskyldunni á þessum "stóra gleðidegi", besta að losna við kennarann og óskipulagið sem virðist fylgja honum og þar af leiðandi náminu!!!
Jæja best að byrja á næsta verkefni
Anna Dora föst á Stensleið hinni "einu réttu"