Víkingarnir rúla............
Skellti mér á djammið með Carro og Jessicu í gær, smá hrekkjavökustemmari í gangi, var svo ásökuð um að hafa ofurfyllt stelpurnar (dettur ykkur slík fásinna í hug um mig) og þegar ég minnti þær nú á að við hefðum allar drukkið það sama þá flugu þau fleygu orð "Þú ert víkingur og þolir meira en við hin" hafiði heyrt það betra. Það var allavega hrikalega gaman þó svo að við höfum farið heim í fyrra lagi vegna ölvunarástands sumra. Í nótt breyttum við svo yfir í vetrartíma, frekar skrýtið að vakna klukkan 9 og þá var klukkan í raun bara 8, reyndar lítið getað sofið í dag, nágrannarnir fyrir ofan mig eru að flytja og búið að vera frekar mikið um brölt og læti af efri hæðinni í dag, slæmt mál fyrir mig sem á að vinna í nótt=þ
Jæja er að spá í að athuga hvort Caroline sé á lífi og hafi komist í vinnuna
Víkingakveðja
Anna Dóra
No comments:
Post a Comment