Wednesday, December 01, 2004

1. des = oppna fyrsta gluggann á súkkulaðidagatalinu

Allt í góðu gengi hér aðventan gengin í garð þannig að ég er byrjuð að skreyta. Setti í dag upp jólastjörnu í eldhúsgluggann og jólaseríu í stofugluggann er nefnilega að reyna að lauma jólaskapinu inn með próflestrinum. Annars finn ég að ég er að byrja að verða stressuð fyrir prófin og nettur hnútur kominn í magann sem ég efast um að hverfi fyrr en klukkan 2 þann 21. des þegar prófin eru formlega búin. Annars er afmælistíminn genginn í garð. Afi minn á afmæli í dag, Jóhanna skvísa á afmæli á föstudag, Edda frænka á laugardag og Binni sonur hennar á sunnudag þannig að til hamingju með það öllsaman. Ég hugsa til ykkar.

Afmæliskveðjur frá Karlskrona

Anna Dóra


No comments: